Umferðaröryggismat og –rýni
Umferðaröryggismat og –rýni eru tveir af meginþáttum
umferðaröryggisstjórnunar vegamannvirkja.
Markmið með umferðaröryggismati er að tryggja að umferðaröryggi lausna
sé metið á faglegan hátt, og borið saman, ef við á, áður en endanlegt val fer
fram. Markmið með umferðaröryggisrýni er að tryggja að ný eða endurbætt umferðarmannvirki
verði eins örugg og hagkvæmt er.
Umferðaröryggismat
Umferðaröryggismat skal fara fram á fyrsta hönnunarstigi, þ.e. frumdragastigi. Eftirtalin verkefni á sviði vegamannvirkja skulu fara í umferðaröryggismat:
- Verkefni sem innifela nýja vegi eða verulegar breytingar á núverandi vegarköflum á Evrópuvegum (TERN-vegum).
- Verkefni sem innifela nýbyggingar á öðrum stofnvegum og tengivegum en TERN-vegum.
- Verkefni sem innifela verulegar breytingar, lengri en 2 km, á öðrum stofnvegum og tengivegum en TERN-vegum og er þá átt við samfelldan kafla og skiptir ekki máli þó verkið sé unnið á nokkrum árum.
- Verkefni sem innifela ný eða breytt vegamót á stofnvegum og tengivegum þar sem áætluð mesta umferð á hliðarvegi er 10 bílar á klukkustund eða meiri.
- Skipulagsáætlanir sem innifela verulegar breytingar á stofn- og tengivegum.
- Smærri verk sem hafa mikla þýðingu út frá umferðaröryggi og fela í sér breytingar á akbraut vega.
- Reiðvegi, göngu- og hjólastíga sem fjármagnaðir eru af Vegagerðinni að hluta eða öllu leiti.
Leiki vafi á hvort verkefni skuli sæta umferðaröryggismati skal forstöðumaður áætlanadeildar taka ákvörðun í samráði við verkefnisstjóra umferðaröryggisrýni.
Umferðaröryggisrýni
Umferðaröryggisrýni skal fara fram á eftirtöldum stigum:
1. stig - forhönnun.
2. stig - verkhönnun.
3. stig - rýni
skal fara fram fyrir eða samhliða lokaverkfundi framkvæmdar verks.
4. stig - rýni
skal fara fram samhliða ábyrgðarúttekt í verki.
Eftirtalin verkefni á
sviði vegamannvirkja skulu fara í umferðaröryggisrýni:
- Kaflar á Evrópuvegum (TERN-vegum) og á öðrum stofnvegum og tengivegum lengri en 2 km og er þá átt við samfelldan kafla og skiptir ekki máli þó verkið sé unnið á nokkrum árum.
- Vegamót, áningarstaðir, keðjuplön og biðstöðvar.
Smærri verk sem hafa mikla þýðingu út frá umferðaröryggi og fela í sér breytingar á akbraut vega.
Göngu- og hjólastígar sem fjármagnaðir eru af Vegagerðinni að hluta eða öllu leyti.
Heimilt er að senda í rýni hönnun til notkunar á fleiri en einum stað (týputeikningar). Þá skulu aðstæður tilgreindar og þær vera sambærilegar, hvað varðar t.d. umferðarmagn og leyfilegan hámarkshraða á vegi.